64. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 25. maí 2023 kl. 13:04


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 13:04
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 13:04
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 13:04
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 13:04
Eva Sjöfn Helgadóttir (ESH), kl. 13:04
Friðjón R. Friðjónsson (FRF), kl. 13:04
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 13:04
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 13:04

Ásthildur Lóa Þórsdóttir boðaði forföll. Halla Signý Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 14:34.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:04
Fundargerð 63. fundar var samþykkt.

2) 945. mál - kosningalög o.fl. Kl. 13:04
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Heimi Örn Herbertsson frá yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis norður, Leif Gunnarsson frá yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður og Berglindi Svavarsdóttur frá úrskurðarnefnd kosningamála.

3) Önnur mál Kl. 14:45
Fleira var ekki gert.

Hlé var gert á fundi frá kl. 13:55 - 14:05.

Fundi slitið kl. 14:45